Vandað handverk sem stenst tímans tönn

OE Steel sérhæfir sig í vandaðri málmsmíði og sérlausnum úr stáli. Við leggjum ríka áherslu á persónulega þjónustu, fagmennsku og lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins.

Við smíðum allt frá sérhönnuðum innréttingum og húsgögnum yfir í stærri verkefni eins og stiga, handrið og glerveggi. Hver hlutur er smíðaður af mikilli nákvæmni þar sem hagnýt virkni og tímalaus hönnun mætast.

Skoða sérsmíði
  • Sérsniðin hönnun

    Hvert verkefni er teiknað og smíðað nákvæmlega eftir máli og óskum viðskiptavinarins.

  • Fagmannleg vinnubrögð

    Við notum eingöngu úrvals stál og endingargóð efni sem tryggja hámarks endingu og fallegan frágang.

  • Persónuleg þjónusta

    Við fylgjum verkefninu alla leið – frá fyrstu hugmynd og skissu að lokafrágangi og uppsetningu.

Ertu með hugmynd eða verkefni í huga?

Hafðu endilega samband. Við svörum öllum fyrirspurnum fljótt og bjóðum fría ráðgjöf og verktilboð.